Samfélagssjóður Valitor hefur starfað óslitið frá árinu 1992.  Þegar sjóðurinn var stofnaður hét félagið  Greiðslumiðlun – Visa Ísland og bar sjóðurinn nafnið Menningarsjóður Visa. Við vorúthlutn sjóðsins í maí 2011 var nafni hans breytt í Samfélagssjóð Valitor til samræmis við nafn félagsins og til að endurspegla tilgang hans.

Hlutverk sjóðsins er að styðja margvísleg menningar-, líknar- og samfélagsmál.

Stjórn sjóðsins skipa þau Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Valitor, Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor og Kristján Þ. Harðarson, sviðsstjóri Markaðs- og þróunarsviðs Valitor.

Umsóknum skal fylgja greinargóð lýsing á markmiði eða viðfangsefni, þó ekki meira en ein síða að lengd. Prófskírteini, umsagnir eða önnur gögn eru frábeðin.  Umsóknarfrestur er til 1. apríl og 1. október ár hvert.

Póstfang sjóðsins er:

Samfélagssjóður Valitor,
Laugavegi 77,
101 Reykjavík,

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Harpa Guðnadóttir, sigrunhg@valitor.is.

Úthlutanir sjóðsins frá upphafi