18.jan. 2012Nýr framkvæmdastjóri Alþjóðalausna hjá Valitor

Ástvaldur Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Alþjóðalausna hjá Valitor.
Starfsemi Alþjóðalausna felst í að bjóða greiðslulausnir á alþjóðlegum vettvangi. Markmið sviðsins er að veita kaupmönnum á internetinu framúrskarandi þjónustu og þannig efla starfssemi Valitor á alþjóðlegan mælikvarða.
Ástvaldur er fæddur 1961 og uppalinn á Akranesi. Hann hefur víðtæka alþjóðlega stjórnunarreynslu eftir störf sín erlendis og á aðalskrifstofu Össurar hf. undanfarinn áratug. Þar áður átti hann sæti í framkvæmdastjórn Nýherja hf. og Pennans ehf. Ástvaldur er með framhaldsmenntun frá Heriot-Watt University í Edinburg í Skotlandi og meistaragráðu í rekstrarhagfræði frá HÍ.
Ástvaldur er kvæntur Ragnhildi Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins, og eiga þau þrjú börn.
Hann hefur þegar tekið til starfa.
Til baka