6.jan. 2012Samfélagssjóður Valitor úthlutar 8 styrkjum
Samfélagssjóður Valitor úthlutaði átta styrkjum í nýliðnum desembermánuði en hlutverk sjóðsins er að styðja við vandlega valin málefni sem bæta mannlíf og efla.
Að þessu sinni hlutu eftirtaldir aðilar styrk úr sjóðnum:
Ásdís Hjálmsdóttir – Frjálsíþróttadeild Ármanns til undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í London 2012.
Helga M. Þorsteinsdóttir – Frjálsíþróttadeild Ármanns til undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í London 2012, þar með talið að ná tilskyldum lágmarksárangri fyrir leikana.
Baldvin Oddsson til að stunda framhaldsnám í trompetleik við San Francisco Conservatory of Music.
Hrund Gunnsteinsdóttir – Krád Consulting til að sinna Young Global Leader (YGL) á vegum “World Economic Forum”.
Félag Heyrnarlausra til að styrkja Menntunarsjóð heyrnarlausra og einnig til kynningar á táknmálinu.
Stykkishólmskirkja til kaupa á pípuorgeli.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur til hjálparstarfs í Reykjavík fyrir jólin 2011.
Hjálparstarf kirkjunnar og Rauði kross Íslands til hjálparstarfs á höfðuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni fyrir jólin 2011.
Stjórn sjóðsins afhenti styrkina en hana skipa Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Valitor, Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor og Kristján Þór Harðarson, sviðsstjóri Markaðs- og þróunarsviðs Valitor.
Alls voru 16 styrkir veittir á árinu 2011, en fyrri úthlutun sjóðsins fór fram í maí sl. Sjóðurinn var stofnaður fyrir 20 árum og hafa frá upphafi verið veittir samtals 132 styrkir til einstaklinga og samtaka sem starfa að menningar-, mannúðar- samfélags- og velferðarmálum. Heildarfjárhæð styrkja á árinu 2011 nam 15 milljónum króna. Næsta úthlutun fer fram á vormánuðum 2012 og tekið er við umsóknum til 1. apríl n.k.

Meðfylgjandi mynd frá styrkveitingu 29. desember sl.:
Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Valitor, Gunnlaugur Árnason, fyrir hönd Stykkishólmskirkju, Hrund Gunnsteinsdóttir, Máni Atlason, fyrir hönd Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur, Sigríður Á. Sigurðardóttir, fyrir hönd Ásdísar Hjálmsdóttur, Baldvin Oddsson, Þröstur Friðþjófsson, fyrir hönd Félags heyrnarlausra og Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.

Meðfylgjandi mynd frá styrkveitingu 16. desember sl.:
Bjarni Gíslason, frá innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða krossins, Anna Kristjánsdóttir, ritari Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, Margrét K. Sigurðardóttir, gjaldkeri Mæðrastyrksnefndar Reykajvíkur, Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Valitor og Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.
Til baka