7.des. 2011Valitor fær alþjóðlega PCI - DSS öryggisvottun
Fyrst íslenska fjármálafyrirtækja
Öryggi kortaupplýsinga hefur verið mjög til umræðu að undanförnu. Ásókn óprúttinna aðila í slíkar upplýsingar hefur farið vaxandi víða um heim og eru kortasvik orðin meðal algengustu glæpa í fjármálakerfum heimsins. Nú hefur Valitor, fyrst íslenskra fjármála- og greiðslukortafyrirtækja, hlotið alhliða PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun sem er sérstaklega ætlað að vinna gegn þessari þróun. Alþjóðlegu greiðslukortafyrirtækin gera í dag þá kröfu að öll fyrirtæki, sem meðhöndla, vista, senda eða móttaka greiðslukortaupplýsingar, vinni í samræmi við kröfur þessa staðals.
Innleiðing PCI DSS öryggisstaðalsins hjá Valitor tekur til allrar starfsemi fyrirtækisins, færsluhirðingar jafnt sem útgáfu. Valitor er fyrir með ISO 27001 vottun á starfsemi sinni og þjónustu við söluaðila, banka, sparisjóði og korthafa . Saman mynda þessir tveir öryggisstaðlar því breiðan grunn til að byggja öryggismál fyrirtækisins á til framtíðar.
Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor: „Þessi nýja vottun er mikilvægt stjórntæki, bæði til að framfylgja okkar stefnu í öryggismálum og til að standast kröfur alþjóðasamfélagsins. Gildi vottunarinnar er reyndar mjög víðtækt enda eru kröfur um stöðu öryggismála fyrirtækja almennt séð farnar að skipta verulegu máli í samskiptum þeirra og rekstrarhæfi. PCI vottunin er auðvitað enginn endapunktur í uppbyggingu okkar á þessu sviði. Við munum eftir sem áður halda árvekni okkar og taka fullan þátt í framþróun öryggismála í heiminum.
Upplýsingaöryggisstefna VALITOR tekur mið af lögum og reglugerð um persónuvernd, tilskipun Evrópusambandsins um persónuvernd og viðkomandi öryggisstöðlum. Jafnframt er stefnan í fullu samræmi við reglur Persónuverndar um öryggi persónuupplýsinga og leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlits um rekstur upplýsingakerfa eftirlitsskyldra aðila.
Til baka