14.okt. 2011

Ísland valið sem tilraunamarkaður fyrir nýjung

Ísland hefur verið valið sem tilraunamarkaður fyrir nýjung sem mun gjörbreyta því hvernig fólk greiðir fyrir vörur og þjónustu.

Oberthur Technologies, eitt stærsta fyrirtæki í heimi á sviði lausna með snjallkortatækni, hefur gengið til liðs við Valitor, helsta samstarfsaðila Visa á Íslandi, og Visa Europe í því skyni að hefja þráðlausar kreditgreiðslur með farsímum til almennra nota hér á landi þegar á næsta ári. Um er að ræða gagngera tæknibyltingu á greiðsluháttum. Fulltrúar þessara fyrirtækja undirrituðu samstafssamning um tilraunaverkefnið í Hörpunni í dag. Allir sem hlut eiga að máli telja Ísland vera kjörinn tilraunamarkað vegna stærðar sinnar og tæknilegs umhverfis.

Með samstilltu átaki Oberthur, Visa og Valitor er svonefndri Near Field Communication (NFC) tækni beitt til að gera landsmönnum kleift að greiða fyrir hvers konar vörur og þjónustu með farsímanum sínum án minnstu snertingar við posabúnað.  Visa kortinu er komið fyrir í SIM korti farsíma viðkomandi einstaklings og þannig getur nýjungin leyst kreditkortin af hólmi alls staðar. Innleiðing tilraunaverkefnisins mun taka marga mánuði og krefst mikillar undirbúningsvinnu frá Oberthur, Visa EU, Valitor og símafyrirtækjum enda um einstakt og afar umfangsmikið verkefni að ræða. Innleiðingin mun hefjast strax í byrjun árs 2012 og er áætlað að unnt verði að taka nýja kerfið í notkun síðla sama árs með 1.000 þátttakendum og fjölmörgum  seljendum vöru og þjónustu. 

Sú lausn sem hér um ræðir er sú lausn sem alþjóða tæknisamfélagið hefur komið sér saman um að nota í framtíðinni. Hér er m.a. átt við alþjóðlegu kortafyrirtækin; símafyrirtækin; símaframleiðendur; framleiðendur stýrikerfa á borð við Google og Windows; og samtök verslunar. Nýja tæknin er ekki eingöngu til hagræðis og þæginda fyrir neytendur því að fyrirtæki á borð við matsölustaði, kvikmyndahús, hótel, verslanir o.fl., sem þurfa á skjótri afgreiðslu að halda, spara tíma með þessari tækni.

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor: „Við höfum átt í mjög nánu og góðu samstarfi við Oberthur Technologies og Visa Europe. Með þessum samningi erum við að njóta stuðnings og sérfræðiþekkingar þeirra við að ýta þessu fyrsta NFC verkefni úr vör á Íslandi. Þessi nýja tækni mun brátt verða að veruleika og fólk mun upplifa þessa þægilegu, öruggu og skjótvirku leið til að greiða fyrir vörur og þjónustu í verslunum.“

Lengi hefur verið dregin upp framtíðarsýn þeirrar tækni sem nú er að verða að veruleika. Eitt af lykilatriðum sem þurfti að leysa voru öryggismál sem eru nú þannig frá gengin að öryggið jafnast á við það besta sem gerist með örgjörvakortum. Annað úrlausnarefni var að fá farsímaframleiðendur til að framleiða símtæki sín með möguleikum á NFC tækni. Fyrirtækin hafa nú flest öll gefið út yfirlýsingar um að nýjustu útgáfur farsíma þeirra verði með slíkri tækni. Sum hafa meira að segja nú þegar framleitt fyrstu símana og það gerir tilraunaverkefnið hér á landi mögulegt.

Valitor mun á næstu vikum greina nánar frá innlendum samstarfsaðilum og framvindu þessa tímamótaverkefnis.

Frá undirritun samningsins: f.v. Niels Hendrik Andersen, Oberthur, Viðar Þorkelsson, Valitor og Fredrik Westemann, Visa EU.

Um Oberthur Technologies

Oberthur Technologies er eitt fremsta fyrirtæki í heimi á sviði öryggistækni: kerfisþróunar, lausna og þjónustu snjallkorta (greiðslukorta, SIM korta, aðgangskorta, NFC) og öruggra auðkennisskjala (auðkenniskorta, vegabréfa, heilsugæslukorta), framleiðslu á peningaseðlum, ávísunum og kerfum til að tryggja flutning á reiðufé.
Starfsmenn Oberthur eru alls 6.800 talsins og starfa í 40 löndum.

Um Visa Europe

Sem forystufyrirtæki um þróun og innleiðingu greiðslutækni er Visa Europe í fararbroddi í Evrópu varðandi þráðlausa greiðsluhætti og greiðslutækni með farsímum, ásamt  tilheyrandi nýjungum.

Yfir 4.000 aðildarbankar eiga og reka Visa Europe sem breytt var í hlutafélag árið 2004. Árið 2007 var Visa Europe aðskilið frá hinu hnattræna Visa Inc. og fékk varanlegt einkaleyfi á evrópska markaðnum. Visa Europe leggur áherslu á að svara fljótt og vel þörfum evrópskra banka og viðskiptavina þeirra - korthafa og kaupmanna - og að vinna að markmiðum Evrópuráðsins um að koma á raunverulegum innri greiðslumarkaði.

 

Til baka