6.okt. 2011Valitor vísitalan
Valitor vísitalan
- þróun Visa kreditkortaviðskipta í september 2011
Valitor hefur tekið upp þá nýbreytni að birta mánaðarlega samanburð á veltutölum milli ára sem sýna breytingar á tilteknu tímabili á notkun íslenskra Visa kreditkorta. Framvegis verða fjölmiðlum sendar þessar upplýsingar í byrjun hvers mánaðar.
Heildarveltuaukning varð á Visa kreditkortaviðskiptum á sl. tímabili um 8,3% ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Notkun innanlands jókst um 6,5% en erlendis var veltuaukningin tæp 18%.
Tímabilið sem miðað er við er frá 22. ágúst til 21. september annars vegar 2010 og hins vegar 2011.
Nánari upplýsingar um sundurliðun:
| |
Breyting milli september 2011 og september 2010
|
|
Heildarvelta samtals
|
+8,3%
|
|
Velta innanlands samtals
|
+6,5%
|
|
Velta utanlands samtals*
|
+17,9%
|
|
Áfengisverslanir - bjór, vín**
|
-10,2%
|
|
Bensínstöðvar og eldsneytissjálfssalar**
|
+10,6%
|
|
Matvöruverslanir og stórverslanir**
|
+2,9%
|
|
Matvara, bensín, vín samtals**
|
+4,3%
|
*Notkun íslenskra Visa korta erlendis
**Notkun íslenskra Visa korta Innanlands
Valitor vísitalan er tekin saman af starfsfólki Valitor og byggist á veltutölum úr kerfum þess. Til grundvallar eru lagðar upplýsingar um þróun á veltu Visa kreditkorta á tilteknu tímabili. Vert er að benda á að Valitor vísitalan er einungis birt í upplýsingaskyni.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Þór Harðarson, sviðsstjóri Markaðs- og þróunarsviðs Valitor í síma 525-2000.

Til baka