16.sep. 2011

Ný greiðsluleið hjá Fyrirtækjalausnum

 

Fyrirtækjalausnir Valitor bjóða nú nýja greiðsluleið fyrir aðila á fyrirtækjamarkaði. Í samstarfi við hugbúnaðarhús getur þú sem söluaðili sett upp vefþjónustur í Microsoft Dynamics NAV og þar með gefið viðskiptamönnum þínum kost á að greiða með kreditkorti án þess að gefa upp kortnúmer við hverja pöntun. Þú einfaldlega gengur frá pöntun og greiðslu inni í þínu viðskiptamannakerfi. Engin reikningsviðskipti. Þetta er einfalt og öruggt þar sem kerfið þitt geymir kortaupplýsingar viðskiptavinar þíns í formi sýndarnúmers.

Endilega kynntu þér málin hjá Fyrirtækjalausnum Valitor í síma 525 2080 eða fyrirt@valitor.is.

Til baka