24.ágú. 2011

Esjudagurinn 28. ágúst 2011

Esjudagur Ferðafélags Íslands og Valitor verður haldin sunnudaginn 28. ágúst næstkomandi. Boðið verður upp á fjölbreyttar gönguferðir upp Esjuna í fylgd fararstjóra frá FÍ. Þá mun Ferðafélag barnanna bjóða öllum börnum í gönguferð í grunnbúðir og 1. búðir Esju. Jarðfræðingar, sagnfræðingar og fjallafararstjórar mæta.   Einnig verður boðið upp á morgungöngu, kvöldgöngu, skógargöngu, ratleik, lifandi tónlist og margt fleira.

Nánari dagskrá:

Kvöldganga laugardaginn 27. ágúst með Ólafi Erni Haraldssyni forseta FÍ
Brottför frá Esjustofu kl. 20.30 laugardaginn 27. ágúst.  

Morgunganga sunnudaginn 28. ágúst með Páli Guðmundssyni framkvæmdastjóra FÍ,  á Móskarðshnúka og Laufskörð
Mæting í Mörkina kl. 6 eða við upphafsstað göngu.

Formleg dagskrá Esjudagsins

Kl. 13.00     Setning Esjudagsins: Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor og Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélagsins

  • Fjallaupphitun í höndum íþróttakennara á túninu fyrir neðan Esjustofu  
  • Gönguferðir með fararstjórum Ferðafélagsins – úrval gönguleiða við allra hæfi.  

                   Lagt verður af stað kl. 13.30, kl. 14.00 og kl. 14.30  

Kl. 14.00    Stafganga – Guðný Aradóttir og Jóna Hildur Bjarnadóttir kynna stafgöngu og notkun stafana á fjöllum

Kl. 14.00    Skógarganga um Mógilsá í umsjón Kristjáns Bjarnasonar frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur.

Kl. 14.30    Kappganga - vaskir fjallagarpar há keppni í kappgöngu að „steini“ – skráning á staðnum.

Athugið að gönguferðirnar eru mislangar

Kl. 13.30    Barnadagskrá: 

Ferðafélag barnanna býður öllum börnum í fyrstu búðir í fylgd sprækra fararstjóra.  Maxímús músikus mætir á svæðið og tekur nokkur lög og Ingó veðurguð stjórnar brekkusöng.

  • Ratleikur – Leitin af Silfri Egils 
    100 þúsund krónum hefur verið komið fyrir á 20 fjársjóðarpokum í Esjuhlíðum  (5000 kr. á hverjum stað)
  •  Gestabók Ferðafélagsins  Allir sem rita nafn sitt í gestabók FÍ á Þverfellshorni eða í „Fyrstu búðum“ lenda í potti – glæsilegir vinningar s.s. ferð með FÍ, útivistarföt frá Cintamani og miði fyrir tvo á tónleika í Hörpunni í haust.

Til baka