22.ágú. 2011

Valur Valitor-bikarmeistari kvenna 2011

2-0 sigur á KR í úrslitaleik á Laugardalsvelli

Valur fagnaði sigri í úrslitaleik Valitor-bikars kvenna  um helgina með því að leggja KR með tveimur mörkum gegn engu á Laugardalsvellinum að viðstöddum rúmlega eitt þúsund áhorfendum.  Eitt mark í hvorum hálfleik tryggði Valssigur.

Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru kjörnar og leikurinn var fjörugur þótt flestir hafi talið Val sigurstranglegra liðið var leikurinn jafn og bæði lið fengu færi. 
Fyrsta markið kom strax á 3. mínútu og var þar að verki Rakel Logadóttir eftir vel útfærða sókn.  KR fékk úrvalsfæri til að jafna metin á lokasekúndum fyrri hálfleiks en knötturinn fór rétt framhjá markinu.

Eina mark seinni hálfleiks skoraði Kristín Ýr Bjarnadóttir á 59. mínútu þegar hún fékk góða fyrirgjöf frá vinstri kanti og afgreiddi knöttinn í hornið fjær með góðum skalla.

Fleiri urðu mörkin ekki og Valur fagnaði Valitor-bikarmeistaratitlinum 2011.

Til baka