16.ágú. 2011

Úrslitaleikur Valitor-bikars kvenna fer fram á Laugardalsvelli 20. ágúst kl.16:00

Það eru KR og Valur sem mætast og er miðasala hafin í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Liðin sem mætast í úrslitaleik Valitor-bikars kvenna í ár hafa átt ólíku gengi að fagna á þessu sumri. Valur er í harðri baráttu við Stjörnuna um Íslandsmeistaratitilinn, en KR berst við falldrauginn. Bikarkeppni er auðvitað af allt öðru tagi og þar hafa liðin vitanlega unnið jafn marga leiki á leið sinni í úrslitaleikinn. Athyglisvert er þó að allir sigrar beggja liða hafa verið með einu marki, og Valur hefur unnið alla leiki sína í keppninni hingað til með markatölunni 1-0.

Það eru aðeins fimm félög sem hafa hampað sigri í bikarkeppni kvenna í gegnum tíðina og bæði þessi lið eru þar á meðal, KR með fjóra bikartitla og Valur með 11, fleiri en nokkuð annað lið.

Sín á milli hafa KR og Valur komið við sögu í 25 af þeim 30 úrslitaleikjum bikarkeppni kvenna sem farið hafa fram, og það í öllum úrslitaleikjum síðan 1994. Þetta er í 4. sinn sem KR og Valur leiða saman hesta sína í úrslitaleiknum, og hefur KR unnið tvisvar en Valur einu sinni.

Til baka