15.ágú. 2011KR-ingar Valitor-bikarmeistarar karla 2011!
Það var boðið upp á hörkuleik þegar Þór og KR mættust í úrslitaleik Valitor-bikars karla á Laugardalsvellinum í dag. Þórsarar mættu sprækir til leiks og sóttu grimmt, án þess þó að ná að skora. Það gerðu KR-ingar hins vegar tvisvar og fögnuðu sigri í leikslok. Leikurinn hafði upp á allt að bjóða sem prýðir alvöru úrslitaleik og var stórkostleg skemmtun fyrir áhorfendur, sem voru vel á sjötta þúsund.
Það var í raun með ólíkindum að Þórsurum skyldi ekki takast að koma knettinum í netið, því knötturinn hafnaði alls fimm sinnum í slá og stöng á marki KR-inga í leiknum.
Fyrra mark KR-inga kom á lokamínútum fyrri hálfleiks og var það leikmaður Þórs sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Einum leikmanni KR var síðan vísað af leikvelli í síðari hálfleik, og allt útlit fyrir mikla spennu, sem varð raunin. Þrátt fyrir tilraunir Þórsara náðu þeir ekki að skora, en það gerðu KR-ingar hins vegar og tryggðu sér sigur í Valitor-bikarnum 2011 við gríðarlegan fögnuð fjölmargra stuðningsmanna í stúkunni.
Valitor óskar KR-ingum innilega til hamingju með titilinn.

Til baka