10.ágú. 2011

Valitor bikar karla - Úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli 13. ágúst

Úrslitaleikur Valitor bikar karla fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 13. ágúst og hefst kl. 16:00. 

Það eru Þór og KR sem mætast og er miðasala hafin í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Bikarsaga liðanna tveggja sem leika til úrslita í Valitor-bikar karla í ár er ansi ólík. 

KR-ingar eru að leika til úrslita í 17. sinn og hafa unnið bikarinn oftar en nokkurt annað lið, eða 11 sinnum. 

Þórsarar höfðu fimm sinnum áður leikið í undanúrslitum, en bættu um betur í ár og eru því í fyrsta sinn í úrslitum bikarkeppninnar.

Það er því von á hörkuspennandi leik á Laugardalsvellinum og væntanlega mikil stemmning, því stuðningsmannahópar þessa tveggja liða þykja þeir kraftmestu í dag.

 

Til baka