9.ágú. 2011

Opna kvennamót VISA og Vildarklúbbs Icelandair verður haldið í Grafarholti sunnudaginn 14. ágúst

Opna kvennamót VISA og Vildarklúbbs Icelandair verður haldið í Grafarholti sunnudaginn 14. ágúst.

Um er að ræða eitt vinsælasta og glæsilegasta kvennamót landsins og síðustu ár hefur selst upp á nokkrum mínútum og langir biðlistar myndast.

Mótið hefst kl. 09:00 af öllum teigum. Mæting kl. 07:30, Kaffi og rúnstykki um morguninn og léttur málsverður að móti loknu.

Mótsstjóri er Margeir Vilhjálmsson.

Glæsileg teiggjöf.

Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og er hámarksforgjöf gefin 36.

Dagskrá
07:30 Mæting og afhending skorkorta og teiggjafa.
08:30 Setning móts. Farið yfir staðarreglur og keppnisfyrirkomulag.
09:00 Ræst út af öllum teigum.
14:30 Móti líkur. Veitingar í boði VISA og Vildarklúbbs Icelandair.
15:00 Verðlaunaafhending og dregið úr skorkortum.

Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni
1. 200.000 Vildarpunktar.
2. Gisting fyrir tvo á Icelandair Hotels í tvær nætur ásamt morgunverði og þriggja rétta kvöldverði.
3. Gjafabréf að verðmæti 30.000 krónur frá Saga Shop.

Nándarverðlaun
2. braut - 60.000 Vildarpunktar
6. braut - 40.000 Vildarpunktar
11. braut – Gisting á Icelandair Hotels í eina nótt
17. braut – 25.000 króna gjafabréf í Saga Shop

Skorkort
30.000 Vildarpunktar
20.000 króna gjafabréf frá Saga Shop
Árstíðarseðill fyrir tvo á VOX
Golfhringur fyrir fjóra á öllum völlum GR
Inneign á VISA kortið 25.000 krónur

Mótsgjald og skráning
Skráning í mótið hefst þriðjudaginn 9. ágúst kl. 10:00 inn á golf.is.

ATH: rástímar á golf.is er eingöngu til að raða í holl.

Mótsgjald er kr.6.500.-

Eingöngu handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta skráð sig í mót.

 

Til baka