22.jún. 2011

Valitor bikarinn - Stjarnan tekur á móti bikarmeisturum Vals

Í dag var dregið í 8 liða úrslitum Valitor bikar karla og kvenna og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ. Hjá konunum mætast m.a. félögin sem léku til úrslita á síðasta ári, Stjarnan og Valur.

Leikirnir hjá konunum í 8 liða úrslitum eru:

Fylkir - FH
Stjarnan - Valur
KR - Grindavík
ÍBV - Afturelding

Hjá körlunum eru tveimur leikjum enn ólokið í 16 liða úrslitum og fara þeir fram á morgun, fimmtudag. KR og FH mætast í Vesturbænum og BÍ/Bolungarvík og Breiðablik leika á Ísafirði.

Leikirnir hjá körlunum eru:

BÍ/Bolungarvík eða Breiðablik - Þróttur R.
Þór - Grindavík
Fjölnir - ÍBV
KR eða FH - Keflavík

Til baka