16.jún. 2011

Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan um greiðslukort tókst vel

Ráðstefna CAC Card Academy um málefni alþjóðlegra greiðslukorta var haldin í Reykjavík dagana 7. og 8. júní sl. en þetta var í fyrsta sinn sem ráðstefna af þessu tagi er haldin hérlendis. Aðsókn var góð og alls tóku á annað hundrað innlendir og erlendir gestir þátt auk 14 fyrirlesara frá Norðurlöndum og meginlandi Evrópu.

Valitor var aðalbakhjarl ráðstefnunnar og flutti Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, erindi sem bar heitið: „Vöxtur í erlendri greiðslukortastarfsemi á viðsjárverðum tímum - Hvernig tókst íslensku greiðslukortafyrirtækjunum að lifa af fall íslenska bankakerfisins?“ 

Erindi Viðars fjallaði um sérstöðu íslenska kortamarkaðarins sem er háþróaður og með mesta kortanotkun á mann í heiminum. Þá ræddi hann forsendur þess að íslensku greiðskukortafyrirtækjunum tókst að halda kortakerfinu virku í bankahruninu og hvaða lærdóm mátti af því draga. Að lokum var því lýst hvernig vöxtur á erlendri starfsemi hefur umbreytt Valitor á undanförnum árum. Fram koma að fyrirtækið er staðráðið í að halda áfram að eflast erlendis samhliða því að gegna áfram forystuhlutverki sínu á heimamarkaði.

Meðal annarra atriða sem voru til umfjöllunar á ráðstefnunni má nefna  erindi um kortagreiðslur í nútíð og framtíð þar sem áhersla er m.a. lögð á tryggðarkerfi,  farsímagreiðslur, viðskipti með blönduð kort (combo-debit/kredit), NFC samskipti og fyrirframgreidd kort, svo að eitthvað sé nefnt.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu CAC: www.cac-cardacademy.com

 

Til baka