27.maí 2011

KR og FH mætast í 16 liða úrslitum Valitor bikarsins

Það var mikil spenna í höfuðstöðvum KSÍ í dag þegar dregið var í 16 liða úrslitum Valitor bikars karla.  Það verða líka hörkuleikir á dagskránni og má fyrst nefna að félögin sem mættust í úrslitaleiknum í fyrra, KR og FH mætast í Vesturbænum.

Tvær aðrar viðureignir eru á milli Pepsi-deildar félaga, Þór og Víkingur leika á Akureyri og Valur fær ÍBV í heimsókn.

Hamar, eina félagið í 16 liða úrslitunum sem leikur í 2. deild, sækir Fjölni heim í Grafarvoginn og Íslandsmeistarar Breiðabliks fara til Ísafjarðar þar sem þeir leika gegn Bí/Bolungarvík.  Grindavík og HK mætast í Grindavík og Haukar og Keflavík í Hafnarfirðinum. Þá er einungis ógetið Reykjavíkurslags Þróttar og Fram.

Leikdagar í 16 liða úrslitum eru 19. - 21. júní en það er þó háð leikjum U21 karla í úrslitakeppni EM í Danmörku.

 

Til baka