10.maí 2011

Margir áhugaverðir leikir í Valitor-bikarnum

32-liða úrslit fara fram 25. og 26. maí.

Það verða margir áhugaverðir leikir í 32-liða úrslitum Valitor-bikarsins, þar á meðal tveir innbyrðis leikir Pepsi-deildarliða.  Bikarmeistarar FH hefja titilvörnina gegn Fylki. 

Dregið var í 32-liða úrslitin í dag að viðstöddum fjölda manns.  Leikirnir fara fram 25. og 26. maí og mun niðurröðun liggja fyrir síðar í dag.

Leikirnir

• Valur - Víkingur Ól
• FH - Fylkir
• KV - Víkingur R.
• Kjalnesingar - ÍBV
• Höttur - Keflavík
• Haukar - KF
• Stjarnan - KR
• KA - Grindavík
• Njarðvík - HK
• Breiðablik - Völsungur
• Léttir - KFS
• Fjölnir - Selfoss
• BÍ/Bolungarvík - Reynir S.
• Þór - Leiknir F.
• ÍR - Þróttur R.
• Berserkir - Fram

Kjalnesingar eru eina liðið í 32-liða úrslitum Valitor-bikarsins sem leika utan deilda.  Þeir hafa reyndar tekið þátt í bikarnum síðan 2006 og þrisvar sinnum áður komist áfram í 2. umferð, en þetta er í fyrsta sinn sem Kjalnesingar leika í 32-liða úrslitum.

KR-ingar hafa unnið bikarinn oftast allra liða, eða 11 sinnum.  Næst koma Valsmenn og Skagamenn með 9 bikartitla, en ÍA féll úr keppni í ár í 2. umferð, töpuðu eftir vítaspyrnukeppni gegn Selfyssingum, í æsispennandi viðureign.

Dregið verður í 16-liða úrslit 27. maí.

 

 

Til baka