24.feb. 2011Breyting á skilmálum söluaðila
Nýlega var kynnt nýtt fyrirkomulag almennra kortatímabila og mun því grein 12.1 í Viðskipta-skilmálum söluaðila VALITOR breytast frá og með 22. febrúar 2011.
Breytta greinin verður svohljóðandi:
12.0 ÚTTEKTARTÍMABIL KREDITKORTA
12.1 Almennt úttektartímabil vegna kreditkorta er u.þ.b. 30 dagar og miðast við 22. hvers mánaðar til og með 21. næsta mánaðar. Söluaðili getur sótt um breytilegt úttektartímabil sem varir að lágmarki til eins árs í senn. Um breytilegt úttektartímabil gilda aðrar reglur en eiga við um almennt úttektartímabil og eru þær gefnar út af félaginu einu sinn á ári.
Til baka