SOS International neyðarþjónustan er hluti af ferðatryggingu VISA kreditkortsins. Hvar og hvenær sem er veitir SOS International VISA korthöfum aðgang að margvíslegri neyðarþjónustu og læknishjálp. SOS International veitir í megindráttum rétt til þrenns konar aðstoðar án aukakostnaðar.
- Útvegar læknishjálp.
- Annast sjúkraflutninga, ferðalög vandamanna og flutning jarðneskra leifa heim ef korthafi lætur lífið erlendis.
- Veitir tímabundna fyrirgreiðslu vegna sjúkrakostnaðar.
Þegar korthafi lendir í slysi eða veikist er best að hafa samband beint við SOS International sem gefur ráð um hvað gera skuli.
Þeir sem ekki treysta sér til að skýra vanda sinn á erlendu tungumáli geta haft samband við tryggingafélag sitt á skrifstofutíma eða Valitor utan skrifstofutíma.
Sérstök neyðarkort eru gefin út og fylgja viðkomandi tegund greiðslukorts við útgáfu. Á þeim eru tilgreind gjaldfrí símanúmer viðlagaþjónustu fyrirtækjanna auk annarra mikilvægra símanúmera sem tengjast VISA greiðslukortum.
Ný neyðarkort er unnt að fá send frá Valitor hvenær sem er.
Beiðni um neyðarkort