Dreifing á lægri upphæðum

Léttgreiðslur eru þægileg leið fyrir korthafa til að dreifa greiðslum vegna smærri innkaupa/viðskipta með lítilli fyrirhöfn í jafnar mánaðarlegar afborganir.
  • Mánaðarleg afborgun skal eigi vera lægri en 1.000 kr
  • Dreifing skv. samkomulagi korthafa og söluaðila.
  • Engir vextir.
  • Færslugjald skv. verðskrá.
Greiðsluformið er sniðið að ákveðnum markaðsþörfum og heimilar greiðsludreifingu vegna smærri viðskipta á handhægan og hentugan hátt.