Greiðsluskipting VISA reiknings gerir korthafa kleift að jafna greiðslubyrði. Beiðni, sem má vera símleiðis, þarf að berast viðkomandi afgreiðslustað banka eða sparisjóðs tímanlega fyrir eindaga greiðslu.
Fjárhæð útborgunar og fjöldi gjalddaga er háð samkomulagi korthafa við sinn banka eða sparisjóð og reglum viðkomandi banka/sparisjóðs.
Fjölgreiðslur bera vexti í samræmi við auglýst kjör bankans eða sparisjóðsins á útgáfudegi, auk færslugjalds skv. verðskrá banka/sparisjóða.
Korthafar þurfa að hafa verið í skilum með VISA kreditkort sín áður en greiðsluskipting er veitt.
Áætlaðar afborganir af Fjölgreiðslum skerða úttektarheimild kortsins á meðan samningur er í gildi.