Af hverju Pinnið á minnið á Íslandi?
Ástæða þess að kortaútgefendur um allan heim hafa farið þessa leið og gefið út greiðslukort sín með örgjörva er sú að pinn afgreiðslumáti getur komið í veg fyrir svik sem verða til með greiðslukortum með falsaðar segulrendur og hamlar notkun á glötuðum og stolnum kortum. Þetta hefur verið vaxandi vandamál um allan heim sem bitnað hefur á söluaðilum og kortaútgefendum auk þess að valda korthöfum óþægindum. Þessi nýja tækni og afgreiðslu aðferð hefur nú þegar orðið til þess að draga stórlega úr svikum og því gert glæpamönnum erfitt fyrir við iðju sína. Upptaka pinn afgreiðslumáta hér á landi er til að hindra að slík svikastarfsemi nái að skjóta rótum hér á landi.
Hvað er pinn númer (PIN)?
Öllum greiðslukortum fylgir fjögurra stafa númer sem er persónulegt innsláttarnúmer korthafa, pinn númer, sem hann einn á að vita hvert er og geyma upplýsingar um með öruggum hætti. Þetta númer þarf að muna til að framkvæma færslur á greiðslukort í örgjörvaposum. Fram að þessu hafa korthafar notað pinnið til að taka út peninga í hraðbönkum og við notkun á sjálfsafgreiðslustöðum eins og við eldsneytiskaup. Þá er þessi afgreiðslumáti orðinn sá algengasti hjá sölu- og þjónustuaðilum erlendis.
Hvað breytist hjá mér sem söluaðila þegar korthafar greiða fyrir vörur eða þjónustu með örgjörvakorti og pinni?
Afgreiðslumaður tekur ekki við kortinu heldur leiðbeinir korthafanum hvernig hann sjálfur setur kortið í lesarann á posanum. Þegar upphæð viðskiptanna liggur fyrir þá slærð þú upphæðina inn sem fyrr á takkaborði posans. Upphæðin birtist síðan korthafanum á skjánum og korthafi samþykkir hana með því að slá inn pinnið sitt.
Hvað breytist fyrir korthafa?
Korthafar þurfa ekki lengur að láta kortið sitt af hendi þegar greitt er fyrir vörur og þjónustu. Þeir stinga einfaldlega korti sínu í posann og staðfesta viðskiptin með því að slá inn pinnið sitt í stað þess að skrifa undir. Þeir fá kvittun á sama hátt og áður.
Pinnið þitt (PIN) eru fjórir tölustafir sem þú þarft að varðveita á öruggan hátt. Ekki geyma pinnið á miða í veskinu eða á öðrum stað þar sem þjófar gætu nálgast það. Ef þú manst ekki pinnið geturðu nálgast það hjá útgefanda greiðslukortsins, banka, sparisjóði eða kortafyrirtæki. Leggðu pinnið á minnið – það er öruggara og flýtir fyrir afgreiðslu.
Hvað geri ég ef korthafinn man ekki pinnið sitt?
Enn um sinn getur þú einnig valið að fá kortið afhent hjá korthafanum og hann afgreiddur með sama hætti og hefur verið gert með því að renna kortinu í posann og korthafinn samþykkir viðskiptin með undirskrift sinni á nótuna. Komi synjun á úttektina við lestur segulrandarinnar þarf korthafi að framvísa öðru korti sem hann man pinnið á eða greiða fyrir úttektina með öðrum hætti. Í lok afgreiðslunnar er gott að ráðleggja korthafanum að hafa samband við bankann sinn eða sparisjóð og fá pinnið sitt endurútgefið. Flestir útgefendur bjóða korthöfum einnig upp á að nálgast pinnið í heimabanka.
Hvað geri ég ef kortið er ekki með örgjörva og því ekki nothæft í pinn afgreiðslu?
Debetkort sem ekki hafa ennþá verið útgefin með örgjörva þarf að afgreiða með „gamla laginu“ og lesa segulrönd þeirra í posanum og krefjast undirskriftar á nótuna.
Hvernig veit ég að færslan hafi verið samþykkt eða hafnað af kortaútgefanda?
Eins og áður þá prentast út sölunóta úr posanum og þar kemur fram að pinn korthafans hafi verið samþykkt og korthafa er afhent afrit vegna viðskiptanna. Ef um synjun á úttektina er að ræða þá kemur fram á nótunni hver ástæða hennar er. (Sjá nánar í notkunarleiðbeiningum með posanum). Í þeim tilvikum þarf að ganga frá greiðslunni með öðrum hætti.
Breytist uppgjör úr posanum eitthvað við pinn afgreiðslu?
Nei, færslur dagsins safnast á sama hátt og áður í minni posans og eru gerðar upp og sendar í dagslok eins og verið hefur.
Hvað geri ég ef korthafi slær inn rangt pinn þrisvar sinnum og kortið "læsist"?
Þegar að þetta gerist þarf korthafinn að hafa samband við bankann sinn eða sparisjóð sem leiðbeinir korthafanum hvernig staðið er að enduropnun kortsins. Til að klára afgreiðsluna þarf að fá kortið afhent hjá korthafa og afgreiða hann með „gamla laginu“ og korthafi staðfestir úttektina með undirskrift sinni.