Á árinu 2011 fóru korthafar að staðfesta greiðslur með pinni í stað undirskriftar, líkt og víða erlendis. Söluaðilar þurfa að setja upp örgjörvaposa sem snýr að viðskiptavinum. Innleiðing á örgjörva afgreiðslumáta byggir á svokölluðum EMV staðli sem m.a. alþjóðlegu kortafyrirtækin VISA og MasterCard standa að til að tryggja aukið öryggi við móttöku á greiðslukortum.

Nú eru öll innlend kreditkort með örgjörva sem er sýnilegur á framhlið kortsins. Útgáfa á innlendum debetkortum með örgjörva er einnig hafin og þeim mun fjölga stöðugt á næstu mánuðum. Með tilkomu örgjörvans á kortin breytist meðhöndlun upplýsinga um korthafann við kaup á vörum eða þjónustu. Breytingin felst í því, að í stað þess að söluaðili taki við greiðslukortinu og renni því í segulrandarlesara á posa eða öðru afgreiðslutæki, þá sér korthafinn sjálfur um að setja kortið í lesarann á posanum og síðan staðfestir hann upphæð viðskiptanna með því að slá inn pinn númerið sitt. Korthafinn lætur því aldrei kortið sitt af hendi við afgreiðsluna.

Hér á landi er það Greiðsluveitan ehf. sem sér um innleiðingu á verkefninu, fyrir hönd kortaútgefenda, færsluhirða og annarra hagsmunaaðila. Ítarlegar upplýsingar má finna á sérstakri heimasíðu verkefnisins, pinnid.is, en einnig má nálgast upplýsingar hjá Fyrirtækjalausnum Valitor í síma 525-2080 og með tölvupósti á netfangið fyririt@valitor.is.

Hvað gera fyrirtæki með sjálfstæðan posa?

Valitor á tilbúnar lausnir fyrir söluaðlila sína, hvort sem hentar betur að setja upp tvo samtengda posa eða einn posa sem má snúa í báðar áttir. Söluaðilar sem nú þegar eru með posa í leigu hjá Valitor þurfa annað hvort að fá uppfærslu á hugbúnaði posans eða að skipta yfir í nýjan örgjörvaposa.

Sérfræðingar posaleigu Valitor veita nánari upplýsingar og ráðgjöf varðandi örgjörvaposa. Sendu póst á fyrirt@valitor.is eða hringdu í síma 525-2100.

Skoða posa sem eru í boði

Hvað gera fyrirtæki með afgreiðslukerfi?

Þjónustuaðilar afgreiðslukerfa eiga tilbúnar tengingar á milli kassa og örgjörvaposa. Finna þarf hentuga staðsetningu fyrir örgjörvaposa eða örgjörvalesara sem snýr að viðskiptavininum.

Þjónustuaðilar greiðslulausna eru Point og Handpoint.

Helstu þjónustuaðilar afgreiðslukerfa eru DK-Hugbúnaður, Skýrr, Strikamerki, Hugbúnaður hf., Reynd-Navision og MerkurPoint.


Spurningar og svör


Bæklingur um pinnið á minnið