Söluaðilar hjá Valitor geta boðið bæði VISA og MasterCard korthöfum greiðsludreifingu með Kortalánum.
Hvað þarf ég að vita um Kortalán?
- Hægt að bjóða viðskiptavinum Kortalán með eða án vaxta.
- Valitor greiðir út til söluaðila annan virkan dag eftir að sala fer fram.
- Valitor tekur ábyrgð á öllum Kortalánum.
- Hægt að bjóða viðskiptavinum staðgreiðsluverð og hagstæðar afborganir.
- Söluaðilar greiða ekkert þjónustugjald og fá staðgreiðsluverð vörunnar greitt að frádregnu færslugjaldi skv. gjaldskrá.
Hvernig virkar þetta?
Kortalán gera söluaðilum kleift að bjóða korthöfum einfalda og örugga greiðsludreifingu við kaup á vörum og þjónustu. Greiðsluskipting vegna stærri innkaupa getur verið í 3 til 36 mánuði og eru vextir breytilegir. Einnig er hægt að bjóða upp á vaxtalaus Kortalán.
Söluaðili útbýr Kortalán á einfaldan hátt á Þjónustuvef okkar en Valitor lánar korthöfum og tekur alla ábyrgð á lánunum. Hámarksheimild miðast við úttektarheimild og viðskiptasögu korthafa, þó að hámarki 500 þúsund kr.
Hvar get ég byrjað?
Til að geta boðið Kortalán þarf söluaðili að vera með samstarfssamning við Valitor og aðgang að Þjónustuvef.
Kortalánareiknir
Reiknivél fyrir Kortalán
Pdf einblöðungur til útprentunar