Þjónustuvefur Valitor gerir söluaðilum kleift að skoða viðskiptayfirlit og veltuupplýsingar hvar sem er og hvenær sem er.

Yfirlit yfir debetkortaveltu eru nú einnig aðgengileg á Þjónustuvefnum og því geta söluaðilar sem eru með alla færsluhirðingu hjá Valitor nálgast öll yfirlit á einum stað, VISA & VISA Electron, MasterCard & Maestro.

Allt á einum stað:

  • Debet- og kreditkortavelta
  • Sundurliðun á uppgjöri
  • Upplýsingar er hægt að flytja yfir í Excel
  • Skráning Kortalána
  • Örugg svæði - öll samskipti dulkóðuð *

Til að tryggja að upplýsingar falli ekki í rangar hendur getur eingöngu skráður prókúruhafi í hlutafélagaskrá sótt um aðgang að Þjónustuvef. Hann getur tilnefnt umsjónarmann sem hefur daglega umsjón með notkun Þjónustuvefs af hálfu söluaðila. Umsjónarmaður getur úthlutað notendanöfnum til annarra starfsmanna.

Tengjast þjónustuvef

Umsókn um aðgang að þjónustuvef

Tilboð í færsluhirðingu

* Valitor leggur ríka áherslu á öryggi Þjónustuvefsins og eru öll samskipti við hann dulkóðuð með 128 bita dulmálslykli.