Korthafi getur nýtt sér Kortalán (áður Raðgreiðslur) til greiðsluskiptingar í 3 til 36 mánuði vegna stærri innkaupa. Kortalán gera söluaðilum kleift að bjóða korthöfum ódýra, einfalda og örugga greiðsludreifingu á vörum og þjónustu. VISA korthafar tengdir Vildarklúbbi Icelandair fá veltutengda punkta af Kortalánum.
Hámarksheimildir miðast við úttektarheimild, skuldastöðu og viðskiptasögu korthafa, þó að hámarki 500.000 kr
Skv. neytendalögum er söluaðila skylt að sýna kaupanda greiðsluáætlun sem sýnir áætlaðar mánaðarlegar greiðslur, þ.e. afborgun ásamt vöxtum og kostnaði. Jafnframt þarf kaupandi að undirrita áætlunina til að staðfesta að hann hafi séð útreikninginn.
Nú getur þú á einfaldan hátt fengið greiðsluáætlun áður en þú kaupir á Kortalánum.

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband.