Ertu að hefja verslunarrekstur og vilt taka á móti debet og kreditkortum? Hér eru mikilvægar upplýsingar um hvernig þú berð þig að.
Valitor býður uppá móttöku á VISA, MasterCard, Electron og Maestro sem eru helstu kortin á markaðnum í dag. Þú byrjar á því að sækja um samstarfssamning hér eða með því að hringja til okkar í síma 525 2000 og við munum leiða þig í gengum ferlið.
Búnaður
Þú þarft að ákveða hvaða búnaður hentar fyrirtæki þínu best, posi, kassakerfi, veflausnir eða jafnvel þrykkivél. Valitor státar af framúrskarandi framboði og þjónustu við posabúnað, sjá
hér. Þjónustan við kassakerfi er í höndum Point eða Handpoint en við hjá Valitor getum séð um öll samskipti fyrir þig.
Afgreiðsla
Við getum afgreitt samstarfssamning og afhent posabúnað tilbúinn til notkunnar innan tveggja sólarhringa frá því að umsókn þín berst okkur og samstarfssamningur hefur verið undirritaður af prókúruhafa fyrirtækis þíns.
Óska eftir að fá sendar rekstrarvörur.
Hér er hægt að kynna sér viðskiptaskilmála Valitor.