Fyrirtækjalausnir eru ábyrgar fyrir sölu og viðskiptatengslum við nýja og núverandi viðskiptavini sem eru í rekstri á íslenskum markaði og þurfa hagnýtar lausnir á sviði greiðslukortaviðskipta.

 

Valitor Ráðgjöf

Tengsl við viðskiptavini og þekking á þörfum þeirra eru lykilatriði í þjónustu Fyrirtækjalausna. Þess vegna er starfsfólk Valitor ávallt að þróa og efla þjónustu fyrirtækisins til viðskiptavina sinna, báðum aðilum til hagsbóta.

Markmið Fyrirtækjalausna er að uppfylla þarfir viðskiptavina Valitor óháð stærð og formi rekstursins, lækka rekstrarkostnað þeirra og gera þeim kleift að spara tíma og fyrirhöfn.

Hafðu samband við Valitor ráðgjöf í síma 525 2255 og við svörum öllum þínum spurningum hratt og örugglega.

Færsluhirðing

Færsluhirðing er þjónusta sem felst í því að miðla færslum milli korthafa og söluaðila. Valitor veitir söluaðilum heimildaþjónustu, sér um vinnslu á færslum og greiðir þær út til söluaðila á uppgjörsdegi.

Færslukerfi Valitor tengist alþjóðlegum greiðslumiðlunarkerfum VISA og MasterCard og tengir þannig saman söluaðila, korthafa og banka um allan heim.