Valitor

Neyðarþjónusta

Glatað/stolið

Á opnunartíma bankanna hringir korthafi í sinn viðskiptabanka/sparisjóð og tilkynnir kortið glatað/stolið, en eftir lokunartíma bankans er hægt að hringja til VALITOR.

Neyðarþjónusta

Allir handhafar VISA korta njóta þjónustu SOS, viðlaga og neyðarþjónustu. Slysa- og sjúkraþjónustan er hluti af ábyrgðarþætti ferðatrygginga korthafa. Tilkynna skal SOS svo fljótt sem verða má um alvarleg slys eða veikindi til að fá aðstoð. Sími: + 45 7010 5050.

Neyðarkort

Korthafar á ferð erlendis sem glata kortum sínum eða þeim er stolið geta hringt í VALITOR allan sólarhringinn og fengið fullgild kort send með hraðflutningsþjónustu DHL. PIN númerið fær korthafi uppgefið hjá VALITOR þegar kortið er komið í hendur viðtakanda gegn staðfestingu að um réttan korthafa sé að ræða. Gjald fyrir neyðarkort er 5.900 kr.

Neyðarfé

Neyðarfé er afgreitt í gegnum Global Customer Assistance Service (GCAS) VISA í Baltimore sem er í samvinnu við afgreiðslustaði Western Union um allan heim. VALITOR sér um milligöngu á afgreiðslu neyðarfjár. Gjald fyrir neyðarfé er 3.500 kr. Við bendum korthöfum á að hafa beint samband við VALITOR ef kort glatast eða því er stolið, einnig er hægt að finna gjaldfrjáls símanúmer í viðeigandi landi á

http://www.visaeurope.com/personal/ivelostmyvisa

Debetkort

Á opnunartíma bankanna hringir korthafi í sinn viðskiptabanka/sparisjóð og tilkynnir kortið glatað/stolið, en eftir lokunartíma bankans er hægt að hringja í þjónustuver VALITOR. Ef þörf er á neyðarþjónustu erlendis getur korthafi fengið neyðarfé og er sú upphæð takmörkuð við innistæðu á reikningi eiganda. Einungis er hægt að veita neyðarþjónustu vegna debetkorta á opnunartíma banka.

 

VALITOR - Laugavegi 77 - 101 Reykjavík - Sími 525 2000 - Fax 525 2020 - Kt: 500683-0589, VSK: 23243 - valitor@valitor.is 
Afgreiðsla opin 8.30-16.30 virka daga - Þjónustusími opinn allan sólarhringinn, alla daga í síma 525 2000