Valitor

Vefgreiðslur

VALITOR kynnir lausn til móttöku greiðslukorta á vefnum. Örugg greiðslusíða og Greiðslugátt sem er afrakstur þróunarvinnu Veflausnadeildar VALITOR.

Vefgreiðslur VALITOR eru vottaðar af Fjölgreiðslumiðlun hf. (FGM) sem sér um úttektir og vottanir á greiðslukortakerfum á Íslandi www.fgm.is 

Vefgreiðslurnar bjóða upp á möguleika á móttöku greiðslna í erlendum gjaldmiðlum.

Vefgreiðslurnar uppfylla PCI DSS öryggisstaðlana.

Örugg greiðslusíða

  • Vefsíða þar sem greiðsla á sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi VALITOR
  • Korthafi flyst af vefverslun söluaðila á Öruggu greiðslusíðuna til að ganga frá greiðslu
  • Einföld lausn fyrir alla sem vilja opna vefverslun

Örugg greiðslusíða gerir söluaðilum kleift að taka við kreditkortagreiðslum á einfaldan, öruggan og ódýran hátt. Viðskiptavinur velur vöru eða þjónustu á vefsíðu söluaðila og þegar kemur að greiðslu er hann fluttur yfir á örugga greiðslusíðu VALITOR þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Þegar leitað hefur verið eftir heimild fyrir færslu, berst staðfesting til viðskiptavinar og söluaðila.

Söluaðili, sem nýtir sér Örugga greiðslusíðu VALITOR, þarf hvorki að taka við né geyma kortanúmer viðskiptavina sinna. Örugg greiðslusíða VALITOR tryggir að kortaupplýsingar viðskiptavina vefverslana séu meðhöndlaðar í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og aldrei aðgengilegar þriðja aðila.

Á Þjónustuvef VALITOR er hægt að skoða allar hreyfingar og færslur sem gerðar eru á Öruggri greiðslusíðu VALITOR.

Við sölu á netinu ber söluaðila að hafa í huga að réttur móttakandi sé á þeirri vöru og/eða þjónustu sem innt er af hendi og kynna sér vel málsgreinar 7.9. og 7.10 í  viðskiptaskilmálum söluaðila hjá VALITOR.

Dæmi um örugga greiðslusíðu

Verð Án vsk. Með vsk.
Uppsetningargjald 30.000 kr 37.650 kr
Mánaðargjald 2.000 kr 2.510 kr
Færslugjald 0 kr 0 kr

Greiðslugátt

  • Greiðsluferli og heimildaleit á vefsíðu söluaðila
  • Söluaðili uppfyllir öryggiskröfur um mótttöku greiðslukorta á netinu
  • Hentar stærri og umfangsmeiri vefverslunum
  • Samskipti í gegnum xml vefþjónustu

Greiðslugátt VALITOR er hugsuð fyrir stærri og umfangsmeiri vefverslanir. Viðskiptavinur velur vöru eða þjónustu á vefsíðu söluaðila og skráir kortaupplýsingar. Vefkerfi söluaðila sendir upplýsingarnar á greiðslugátt VALITOR (vefþjónusta) þar sem greiðslan fer fram. Þar sem söluaðili tekur á móti kortaupplýsingum á sínum vef eru auknar öryggiskröfur gerðar til söluaðila, m.a. úttekt hjá Fjölgreiðslumiðlun á vefsíðu.

Á Þjónustuvef VALITOR er hægt að skoða allar hreyfingar og færslur sem gerðar eru í gegnum Greiðslugátt VALITOR.

Við sölu á netinu ber söluaðila að hafa í huga að réttur móttakandi sé á þeirri vöru og/eða þjónustu sem innt er af hendi og kynna sér vel málsgreinar 7.9. og 7.10 í  viðskiptaskilmálum söluaðila hjá VALITOR.

 

Verð Án vsk. Með vsk.
Uppsetningargjald 50.000 kr 62.750 kr
Mánaðargjald 2.000 kr 2.510 kr
Færslugjald 0 kr 0 kr

 

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Fyrirtækjalausna VALITOR í síma 525 2080.

 

 

 

VALITOR - Laugavegi 77 - 101 Reykjavík - Sími 525 2000 - Fax 525 2020 - Kt: 500683-0589, VSK: 23243 - valitor@valitor.is 
Afgreiðsla opin 8.30-16.30 virka daga - Þjónustusími opinn allan sólarhringinn, alla daga í síma 525 2000