Valitor

Vildarpunktar

Punktastaða

Skoðaðu punktastöðu þína í Vildarklúbbi Icelandair

Punktasöfnun

Af innlendri veltu

Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair ávinna sér 3-12 punkta, eftir kortategund og útgáfubanka, vegna allrar innlendrar notkunar á kortinu hjá söluaðilum, sem hafa söluaðilasamning við VALITOR. Tilvalin leið til að fá fleiri punkta er að greiða afnotagjöld, áskriftir, orkureikninga, fasteignagjöld, leikskólagjöld ofl. með Boðgreiðslum. Einnig fást punktar fyrir Raðgreiðslur og Kortalán.

Afsláttur í formi punkta hjá samstarfsaðilum

Fjöldi fyrirtækja í verslun og þjónustu veita afslátt í formi punkta. Punktar safnast ótrúlega fljótt ef korthafar beina verslun sinni til samstarfsaðila Vildarklúbbsins. Sjá lista á heimasíðu Vildarklúbbsins. Auk viðbótarpunkta fást líka veltupunktar (sjá ofan).

Í viðskiptum við Icelandair og samstarfsaðila Vildarklúbbsins

Þú færð punkta þegar þú ferðast með Icelandair, Flugfélagi Íslands. Einnig fást punktar þegar þú greiðir fyrir hótel eða bílaleigubíl. Punktar fyrir flug færast ekki á Vildarreikning fyrr en ferð hefur verið flogin. Meiri upplýsingar á heimasíðu Vildarklúbbsins.

Fyrning

Afsláttarpunktar frá samstarfsaðilum fyrnast aldrei, punktar af innlendri veltu gilda í 6 ár og punktar í viðskiptum við Icelandair gilda í allt að 4 ár (það ár sem punktarnir ávinnast og 3 ár þar eftir).

Meiri upplýsingar um punktakaup og punktanotkun á heimasíðu Vildarklúbbsins

 

VALITOR - Laugavegi 77 - 101 Reykjavík - Sími 525 2000 - Fax 525 2020 - Kt: 500683-0589, VSK: 23243 - valitor@valitor.is 
Afgreiðsla opin 8.30-16.30 virka daga - Þjónustusími opinn allan sólarhringinn, alla daga í síma 525 2000