
Laugardaginn 13. febrúar kl. 14 – 17 býður World Class í Laugum í samstarfi við Ferðafélag Íslands upp á sýningu á skiltum sem Ferðafélag Íslands hefur sett upp á vinsælustu gönguleiðum landsins: Laugveginum, Fimmvörðuhálsi og Hvannadalshnúki. Sýningin er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
Sumarið 2007 tók Ferðafélag Íslands í notkun ný og afar vegleg skilti sem voru sett upp við skála félagsins á Laugaveginum með fulltingi Menningarsjóðs VISA Íslands. Sumarið 2009 voru sett upp skilti við gönguleið um Fimmvörðuháls og Hvannadalshnúk, einnig með stuðningi VALITOR og VISA.
Um er að ræða nýjung í merkingu gönguleiða á Íslandi og nýjung í skiltagerð hér á landi. Skiltin eru hönnuð þannig að í grunninn eru þrívíddarmyndir af landslaginu, á grunninn eru síðan lagðar ljósmyndir sem síðan eru málaðar af listamanni og loks eru færðar inn upplýsingar um örnefni, skála og fleira gagnlegt á kortið.