
Korthafa ber að snúa sér til viðskiptabanka/sparisjóðs síns og fylla út skriflega kvörtun varðandi viðkomandi færslu og best er að hann komi með öll gögn máli sínu til stuðnings, þ.e. sölunótur, kvittanir eða samninga.
Erlendar færslur korthafa eru umreiknaðar beint úr kauplandsmynt yfir í íslenskar krónur á því gengi sem í gildi er hjá VISA International þann dag sem færslan berst frá seljanda og er innheimt hjá VALITOR. Upplýsingar um gengi helstu gjaldmiðla í viðskiptum eru uppfærðar daglega.
Alls ekki svara þessu! Þessi tölvupóstur kemur ekki frá neinum aðila sem tengist VISA, þótt það geti litið svo út. Ekki láta blekkjast þótt orðið "visa" standi einhvers staðar í netfanginu. Einnig hefur orðið vart við lævísa tilraun á netinu til að blekkja einstaklinga til að gefa upp kortnúmer sitt, gildistíma og PIN-númer á heimasíðu sem líkist heimasíðu VISA. PIN-númer á einungis að nota í hraðbönkum eða öðrum sjálfsafgreiðslubúnaði og er óheimilt að senda í tölvupósti eða láta öðrum í té.
Upplýsingar um úttektarmörk korthafa er að finna á mánaðarlegri reikningsútskrift hans. Sé hún ekki við höndina getur korthafi haft samband við banka/sparisjóð sinn til þess að fá frekari upplýsingar og eins ef hann óskar eftir að fá heimild sína hækkaða.
Kort er aldrei opnað á ný símleiðis af öryggisástæðum. Korthafi þarf að snúa sér til viðskiptabanka/sparisjóðs síns og skrifa undir beiðni um enduropnun. Um leið tekur hann ábyrgð á öllum færslum sem kunna að hafa verið gerðar á meðan kort hans var skráð sem glatað/stolið.
Korthafi á að snúa sér til viðskiptabanka/sparisjóðs síns innan 3ja daga frá því kort var tilkynnt glatað/stolið, staðfesta kortmissinn skriflega og óska í leiðinni eftir nýju korti.
Já, en það eru úttektarmörk korthafa og eftirstöðvar Kortalána / Raðgreiðslna hverju sinni sem ráða því hve mörg Kortalán / Raðgreiðslur er hægt að hafa í gangi í einu.
Já, lágmarksafborgun á mánuði á hverja Raðgreiðslu er 500 kr.
Já, það er hægt. Tilkynna þarf slíka ósk til Fyrirtækjalausna VALITOR fyrir 15. dag mánaðar svo hægt sé að ganga frá uppgreiðslu á næsta VISA reikning korthafa.
Nei, það er ekki hægt því að korthafinn sem skrifaði undir Kortalán / Raðgreiðslubréfið er alltaf ábyrgur fyrir greiðslu þess.
Korthafi getur fengið PIN-númerið endurútgefið með því að hafa samband við banka sinn eða sparisjóð og ef mikið liggur við er hægt að koma í afgreiðslu VALITOR, Laugavegi 77 og fá númerið endurútgefið meðan beðið er. Ef þú vilt fá PIN-númerið sent heim til þín getur þú pantað það hér.
Já, ef þú hefur ekki skipt um kortnúmer.
Nei, öll VISA kort eru gefin út af bönkum og sparisjóðum og útgáfan er háð samþykki þeirra. Þú snýrð þér því til viðskiptabankans þíns.
Tvö tryggingarfélög tryggja VISA korthafa. Sjóvá tryggir viðskiptavini Íslandsbanka og VÍS (Vátryggingafélag Íslands) tryggir viðskiptavini Arion banka, Landsbanka, MP banka og sparisjóðanna. Starfsfólk tryggingarfélaganna metur tjón og greiðir út bætur skv. skilmálum. Korthafar eru vinsamlega beðnir að snúa sér beint til tjónadeildar tryggingarfélaganna með frekari spurningar, Sjóvá 440 2000 og VÍS 560 5000.