
Ferðatryggingar korthafa eru sennilega þau fríðindi sem best eru þekkt og mest metin af handhöfum VISA kortanna. Korthafi sem greiðir ferðakostnað, að því sem krafist er, áður en ferð hefst, annað hvort með eingreiðslu, VISA Raðgreiðslum eða með Kortaláni, tryggir sér sjálfkrafa ferðatryggingar og viðlagaþjónustu um allan heim.
VÍS er tryggingafélag allra VISA korthafa, Arion banka, Landsbankans, MP banka og Sparisjóðanna, þar með talið BYR Sparisjóðs. Starfsfólk VÍS metur tjón og greiðir út bætur skv. skilmálum. Korthafar eru vinsamlega beðnir um að snúa sér beint til tjónadeildar VÍS með frekari spurningar.
Sjóvá er tryggingafélag allra VISA korthafa Íslandsbanka. Starfsfólk Sjóvá metur tjón og greiðir út bætur skv. skilmálum. Korthafar eru vinsamlega beðnir um að snúa sér beint til tjónadeildar Sjóvá með frekari spurningar.
Tryggingarnar eru innifaldar í árgjaldi VISA kortsins en þær eru mismunandi víðtækar eftir tegund korts. Meginsjónarmið við samsetningu þeirra er að korthafi njóti jafnan öruggrar slysa- og sjúkratryggingar ásamt þjónustu varðandi útvegun læknis, sjúkrahússvist, heimflutning og annað er að slysi eða veikindum á ferð erlendis lýtur.
Tryggingaskilmála VÍS má fá hjá Arion banka, Landsbankanum, Sparisjóðum og MP Banka eða skoða hér.
SOS annast viðlaga- og neyðarhjálp fyrir VISA korthafa.
|
|