
Vottun VISA (Verified by VISA) er þjónusta sem VISA korthöfum stendur til boða og gerir þeim kleift að eiga viðskipti við netverslanir með enn tryggari hætti en áður hefur verið unnt.
Skráningin er gerð í tveimur áföngum.
1) Þú sendir inn beiðni og innan þriggja virkra daga færðu svarbréf heim til þín.
2) Í bréfinu eru leiðbeiningar um hvernig þú skráir þig í Vottun VISA.
Ef þú hefur gleymt lykilorði eða það virkar ekki, getur þú fengið nýtt lykilorð með því smella hér.
Vottun VISA felst í því að korthafi skráir kortnúmer sitt ásamt kennitexta og lykilorði sem hann velur hvort tveggja. Lykilorðið tryggir að enginn nema korthafinn getur notað kortnúmer hans í viðskiptum á Netinu. Kortnúmerið ásamt lykilorðinu eru skráð í gagnagrunn hjá VALITOR þar sem ýtrasta öryggis er gætt varðandi trúnað og dulkóðun upplýsinganna.
Þegar VISA kortið er skráð sem greiðslumiðill í lok viðskipta við netverslun sem notar Vottun VISA opnast gluggi þar sem fram koma upplýsingar sem korthafi þekkir frá því hann skráði sig í þjónustuna og þarna slær hann inn lykilorðið sitt og staðfestir þar með viðskiptin. Einföld, örugg og þægileg aðgerð sem notendur eru fljótir að tileinka sér.
Sífellt fleiri netverslanir gera nú kröfur til þess að VISA korthafar sem þar versla séu skráðir í Vottun VISA þó enn séu einnig aðrar aðferðir í notkun sem miða að því að auðkenna að um réttan korthafa sé að ræða. Þar má t.d.nefna notkun CVV 2, sem er þriggja stafa öryggisnúmer sem er áprentað á eftir kortnúmeri á undirskriftarreit á bakhlið VISA kortsins. Vottun VISA gengur skrefi lengra því þar er notað lykilorð sem ekki er sýnilegt á kortinu. Á heimasíðum netverslana má sjá hið alþjóðlega vörumerki þessarar þjónustu, Verified by VISA, sé vottunar krafist.
Vottun VISA er nú gjaldfrjáls en gert er ráð fyrir 200 kr árgjaldi síðar.