
Alþjóðalausnir eru svið innan VALITOR sem þjónustar erlenda kaupmenn í færsluhirðingu. Markmið Alþjóðalausna VALITOR er að sækja fram á erlendum mörkuðum og efla þjónustu fyrirtækisins á alþjóðlegan mælikvarða, þannig að alþjóðaviðskipti verði á næstu árum einn af hornsteinum í starfsemi fyrirtækisins.
Lengst af máttu kaupmenn aðeins skipta við færsluhirða í því landi sem þeir voru skráðir. Fljótlega eftir að færi gafst á að veita söluaðilum þjónustu hvar sem var í Evrópu, var sótt um heimild til þess að stunda alþjóðaviðskipti og var leyfi til alþjóðaviðskipta (Cross Border) gefið út á árinu 2002. Fram að þessu hafa aðeins netkaupmenn verið í viðskiptum við fyrirtækið en með nýju kerfi, sem hannað hefur verið innan VALITOR, hafa opnast möguleikar á að þjónusta einnig söluaðila í almennum viðskiptum. Stöðugur vöxtur hefur verið í alþjóðaviðskiptum fyrirtækisins að undanförnu og framundan eru fjölþætt og spennandi tækifæri til að gera enn betur.
Til þess að kynna sér Alþjóðalausnir nánar þá bendum við á www.valitor.com