
Kortalausnir annast vinnslu og útgáfu greiðslukorta fyrir banka og sparsjóði og veita margvíslega þjónustu vegna þeirra ásamt því að starfrækja þjónustuver.
Markmið Kortalausna VALITOR er að byggja upp þjónustu og þróunarstarf með bönkum og sparisjóðum og renna þannig styrkari stoðum undir kortaútgáfu, ásamt því að tryggja áframhaldandi sterka stöðu á íslenskum kortamarkaði.
Með öflugu samstarfi við banka og sparisjóði myndast ný tækifæri á vettvangi kortaútgáfu þar sem bankar og sparisjóðir geta nýtt sér þá þekkingu sem VALITOR býr yfir og myndað þannig öflug tengsl við sína viðskiptavini í gegnum kortaútgáfu.
Auk viðskiptatengsla við útgefendur heyra undir sviðið dagleg framleiðsla og dreifing korta svo og rekstur þjónustuvers sem svarar fyrir allt fyrirtækið og veitir korthöfum neyðarþjónustu allan sólarhringinn, alla daga ársins.