
VALITOR kappkostar að veita söluaðilum, bönkum, sparisjóðum og korthöfum á ferð um heiminn örugga, skjóta og þægilega þjónustu. Nýtt skipulag skerpir á ábyrgð og verkaskiptingu innan fyrirtækisins, einfaldar boðleiðir og leggur grunn að snerpu í ákvarðanatöku og þjónustu.
Starfsemi VALITOR er skipt í þrjú afkomusvið: Alþjóðalausnir, Fyrirtækjalausnir og Kortalausnir.
Stoðsvið eru fjögur: Áhættustýring, Fjármálasvið, Upplýsingatæknisvið og Þróunar- og kynningarsvið.