Valitor

Uppgjör

Uppgjör á kreditkortaveltu

VALITOR býður söluaðilum þrjár mismunandi leiðir til uppgjörs á kreditkortaveltu, mánaðarlegt, vikulegt eða daglegt uppgjör, allt eftir þörfum hvers og eins.

Mánaðarleg uppgjör

Færslur greiddar til söluaðila annan virka dag næsta mánaðar eftir að úttektartímabili lýkur.

Dagleg uppgjör

Daglegt uppgjör er hentugur kostur fyrir söluaðila sem kjósa aukið greiðsluflæði og styttri bindingu fjármagns í kreditkortaveltu. Það eru þrjár mismunandi leiðir í boði fyrir söluaðila.    

     Færslur greiddar söluaðila daglega, daginn eftir að þær berast til VALITOR.
         Helgarvelta er greidd út á þriðjudegi.
     Færslur greiddar söluaðila daglega, 7 dögum eftir að þær berast til VALITOR.
     Færslur greiddar söluaðila daglega, 14  dögum eftir að þær berast til VALITOR.

Vikuleg uppgjör

Vikulegt uppgjör er leið sem hentar þeim sem vilja fara milliveginn og fá kreditkortaveltu greidda út einu sinni í viku.

    Færslur greiddar til söluaðila vikulega, 7 síðustu dagar greiddir út.

Álag vegna fyrirfram útborgana (dagleg/vikuleg) er skv. verðskrá VALITOR og er það breytilegt eftir vaxtaþróun og uppgjörsleiðum.

 

VALITOR - Laugavegi 77 - 101 Reykjavík - Sími 525 2000 - Fax 525 2020 - Kt: 500683-0589, VSK: 23243 - valitor@valitor.is 
Afgreiðsla opin 8.30-16.30 virka daga - Þjónustusími opinn allan sólarhringinn, alla daga í síma 525 2000