
Skipt hefur verið um nafn á VISA Lánum og heita þau núna Kortalán. Einungis er um nafnabreytingu að ræða og kjör korthafa og söluaðila því þau sömu og þau voru á VISA Lánum áður.
Lánin verða áfram útbúin á Þjónustuvef VALITOR.
Framvegis geta söluaðilar VALITOR því boðið bæði VISA og MasterCard korthöfum greiðsludreifingu með Kortalánum en til þess að virkja MasterCard færsluhirðinguna hjá VALITOR þarf að gera lítilsháttar breytingu á samstarfssamningnum.
Kortalán gera söluaðilum kleift að bjóða korthöfum einfalda og örugga greiðsludreifingu á vörum og þjónustu. Korthafi getur nýtt sér Kortalán til greiðsluskiptingar í 3 til 36 mánuði vegna stærri innkaupa og vextir af þeim eru lægri en almennt gerist á Raðgreiðslum. Söluaðili útbýr lán á öruggan og einfaldan hátt á Þjónustuvef VALITOR.
Söluaðili útbýr Kortalán en VALITOR lánar korthöfum og tekur alla ábyrgð á lánunum. Söluaðilar fá höfuðstól greiddan strax út og greiða hvorki þjónustugjald eða aukakostnað af lánunum. Einnig gefst kostur á að bjóða Vaxtalaus Kortalán.
Hámarksheimildir miðast við úttektarheimild, skuldastöðu og viðskiptasögu korthafa, þó að hámarki 500.000 kr.
Til að geta boðið Kortalán þarf söluaðili að vera með samstarfssamning við VALITOR og aðgang að Þjónustuvef VALITOR.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Fyrirtækjalausna VALITOR í síma 525 2080.
Lánareiknir gerir söluaðilum kleift að reikna út greiðsluáætlun fyrir viðskiptavini vegna Kortalána á fljótlegan og einfaldan hátt miðað þær forsendur sem honum henta.
Kynntu þér viðskiptaskilmála Kortalána nánar hér.