Valitor

Fyrirtækjalausnir

Fyrirtækjalausnir eru ábyrgar fyrir sölu og viðskiptatengslum við nýja og núverandi viðskiptavini sem eru í rekstri á íslenskum markaði og þurfa hagnýtar lausnir á sviði greiðslukortaviðskipta. Tengsl við viðskiptavini og þekking á þörfum þeirra eru lykilatriði í þjónustu Fyrirtækjalausna. Sviðið er skipað starfsfólki með breiða þekkingu á vörum og þjónustu VALITOR, auk þess sem þjónustuver fyrirtækisins sinnir símsvörun og annarri þjónustu utan hefðbundins afgreiðslutíma.

Markmið Fyrirtækjalausna er að uppfylla þarfir viðskiptavina VALITOR óháð stærð og formi rekstursins, lækka rekstrarkostnað þeirra og gera þeim kleift að spara tíma og fyrirhöfn.

 

Færsluhirðing er þjónusta sem felst í því að miðla færslum milli korthafa og söluaðila. VALITOR veitir söluaðilum heimildaþjónustu, sér um vinnslu á færslum og greiðir þær út til söluaðila á uppgjörsdegi.

VALITOR miðlar greiðslum milli tveggja aðila og tryggir að:

  • Söluaðilar fái greidda rétta upphæð á réttum tíma
  • Rétt upphæð sé skuldfærð hjá korthöfum

Færslukerfi VALITOR tengist alþjóðlegu greiðslumiðlunarkerfi VISA, VISA Net sem er gríðarlega öflugt. Kerfið tengir saman yfir milljarð korthafa, rúmlega 20 milljónir söluaðila og yfir 21 þúsund aðildarbanka VISA um allan heim. Á örfáum sekúndum afgreiðir greiðslumiðlunarkerfið hverja færslu, sama hvar korthafi er staddur í heiminum. VISA Net getur annað yfir 100 milljónum færslna á hverjum degi.

Korthafi:

Nýtur fljótvirkrar og einfaldrar greiðsluleiðar í viðskiptum sínum um nær allan heim.

Söluaðili: Skjótari afgreiðsla, aukið öryggi í viðskiptum og meiri þjónusta við viðskiptavini.
Færsluhirðir: VALITOR er færsluhirðir sem miðlar greiðslum milli korthafa og söluaðila, sér m.a.  um heimildagjöf, vinnslu á færslum og uppgjör.
Útgefandi: Á Íslandi eru það bankar og sparisjóðir sem eru útgefendur og ábyrgðaraðilar á greiðslukortum.

Hver er ávinningurinn með því að taka við kortum?

Kaupferlið einfaldað

Með því að taka við greiðslukortum verður kaupferlið einfaldara og eykur  þannig ánægju og þægindi þín og viðskiptavina þinna. Þér gefst einnig kostur  á að bjóða greiðsludreifingu og koma þannig til móts við þarfir  viðskiptavinanna þegar þeir kaupa fyrir hærri upphæðir. Greiðsludreifing er  auk þess söluhvetjandi og gagnlegt viðskiptatæki.

Aukin þægindi - meiri sala

Þeir sem greiða með greiðslukortum þurfa ekki að vera með stórar  peningaupphæðir á sér. Greiðslukort veita því aukin þægindi og sveigjanleika,  auk þess sem þau draga úr sölutapi. Rannsóknir sýna að fólk kaupir fyrir hærri  upphæðir með greiðslukortum en annars.

Skjótvirkari og meiri þjónusta

Það er fljótlegra að greiða með korti en peningum sem leiðir til styttri biðraða og ánægðari viðskiptavina. Þér og starfsfólki þínu gefst meiri tími til að sinna viðskiptavinunum og veita þeim persónulegri þjónustu.

Minni kostnaður – meira öryggi

Greiðslukortaviðskipti geta minnkað kostnað fyrir þig vegna meðhöndlunar peninga. Einnig draga þau úr áhættunni sem fylgir því að vera með peninga í þinni vörslu. Unnt er að treysta því að greiðslurnar berist örugglega beint inn á bankareikning þinn.

 

VALITOR - Laugavegi 77 - 101 Reykjavík - Sími 525 2000 - Fax 525 2020 - Kt: 500683-0589, VSK: 23243 - valitor@valitor.is 
Afgreiðsla opin 8.30-16.30 virka daga - Þjónustusími opinn allan sólarhringinn, alla daga í síma 525 2000